Sigurður Sverrir Pálsson

 

Sigurður Sverrir Pálsson stundaði nám við London School of Film Technique árin 1967 til 1968. Þegar heim kom hóf hann störf hjá RÚV sem klippari, kvikmyndatökumaður og þáttastjórnandi til ársins 1976. Sigurður hefur kvikmyndað  fjölmargar íslenskar bíómyndir. Þar má má nefna  Land og Synir (Leikstjóri Ágúst Guðmundsson), Útlaginn (Leikstjóri Ágúst Guðmundsson), Einsog skepnan deyr (Leikstjóri Hilmar Oddson), Sódóma Reykjavík (Leikstjóri Óskar Jónsson), Tár úr Steini (Leikstjóri Hilmar Oddson), Benjamín Dúfa (Gísli Snær Erlingsson), María (Leikstjóri Einar Heimisson), Perlur og Svín (Leikstjóri Óskar Jónsson) Ikingut (Leikstjóri Gísli Snær Erlingsson), Kaldaljós (Leikstjóri Hilmar Oddson) og heimildarmyndina Málarinn og sálmurinn hans um litinn (Leikstjóri Erlendur Sveinsson). Sigurður Sverrir hefur hlotið mikið lof fyrir verk sín og fengið allnokkur verðlaun. Þar er helst að nefna Menningarverðlaun DV fyrir kvikmyndatöku í Land og Sonum, einnig hlaut hann sömu verðlaun árið 1997 fyrir Íslands þúsund ár, árið 1996 fékk hann verðlaun fyrir “Framúrskarandi Kvikmyndatöku” fyrir kvikmyndina Tár úr steini á Prague International Film Festival, árið 2004 Eddu verðlaun og verðlaun fyrir bestu kvikmyndatöku á Verona Film Festival “Schermi d’Amore” fyrir kvikmyndina Kaldaljós og einnig fékk hann tilnefningu Eddunnar fyrir kvikmyndatöku á myndinni Málarinn og sálmurinn hans um litinn. Sigurður Sverrir er búsettur og starfar í Danmörku.